Ég mætti einni yngismey um daginn
og aldrei leit ég þvílíkt fljóð.
Hún hvarf mér, en ég söng í sunnanblæinn
með sorg í hjarta þetta ljóð:
Nú léki allt í lyndi
ef litla stúlku ég fyndi
og lukkan myndi snúast mér í vil.
En hvar skal hennar leita?
Og hvað skyldi hún heita?
Ég kenn ekki á slíku skil.
Ég myndi' um ást og yndi,
ef aðeins hana ég fyndi,
nú óðar syngja gleðibrag.
En það er svona' og svona,
að sitja bara' og vona
og sjá ei fram á næsta dag.
En aldrei mun ég henni aftur mæta
og aldrei mun ég hana fá.
Þó varla við mitt ólán megi bæta,
mín vex þó stöðugt ástarþrá.
Nú léki allt í lyndi
ef litla stúlku ég fyndi
og lukkan myndi snúast mér í vil.
En hvar skal hennar leita?
Og hvað skyldi hún heita?
Ég kann ekki á slíku skil.
Ég myndi' um ást og yndi,
ef aðeins hana ég fyndi,
nú óðar syngja gleðibrag.
En það er svona' og svona,
að stija bara' og vona
og sjá ei fram á næsta dag.
credits
from Nóttin og þú,
released December 8, 2020
Music & Lyrics: Steingrímur M. Sigfússon
The second EP from Northern Irish singer-songwriter Bea Stewart runs from gentle folk to pillowy pop ballads, all perfectly executed. Bandcamp New & Notable Apr 15, 2024
Percussionist and sound artist Riccardo La Foresta joins musician and producer James Ginzburg for a fluid collaborative experiment. Bandcamp New & Notable Feb 4, 2024
Stirring Americana set to acoustic arrangements and topped by the legendary Alice Gerrard’s lovely, world-wise voice. Bandcamp New & Notable Oct 23, 2023